Ráðagerði
Í einstöku umhverfi í náttúruperlunni Gróttu stendur gamalt timburhús sem byggt var fyrir aldamótin 1900. Í dag er þar að finna notalegan veitingastað, Ráðagerði Veitingahús.
Ráðagerði býður upp á fjölbreyttan matseðil sem dregur innblástur sinn frá einfaldleika ítalskrar matargerðar. Þar má finna ljúffenga rétti á sanngjörnu verði.

Að heimsækja Ráðagerði er eins og að koma í sveit, fjarri erli miðborgar þó að staðurinn sé eingöngu í 7 mínútna akstursfjarlægð frá miðborg Reykjavíkur. Útsýnið er einstakt og víðáttan ótrúleg í allar áttir en Esjan, eldfjöllin á Reykjanesskaganum, Snæfellsjökull og Gróttuvitinn spila þar stórt hlutverk. Á veturna finnst varla betri staður á höfuðborgarsvæðinu þar sem ljósmengun er jafn lítil og því fullkomið að njóta norðurljósa beint eftir kvöldverð í Ráðagerði. Á sumrin er dásamlegt að setjast út á pall og njóta sólseturs undir fuglasöngi en svæðið er þekkt fyrir fjölskrúðugt fuglalíf.
Komið og njótið með okkur.